Skip to main content

Uppsetning á sölugrunni

Sé fyrirtækið að vinna með sölureikninga er nauðsynlegt að kynna sér þær viðbætur sem fylgja eMessaging og þekkja hvað stillingarnar gera.

Hákon Davíð Halldórsson avatar
Written by Hákon Davíð Halldórsson
Updated over 3 months ago

Áður en þú byrjar

  • Gangtu í skugga um að hlutverkið í þínum stillingum sé "Centara Documents" - Nánar um hlutverk í eMessaging.

  • Farðu í leitina og sláðu inn "Centara Uppsetning" og veldu "Sölugrunnur" í stikunni.

  • Ef þú ert að setja lausnina upp í fyrsta skipti og varst að klára álfinn skaltu smella hér


Centara viðbætur í Sölugrunni

eMessaging framlengir Business Central lausnina frá Microsoft sem heitir e-Invoicing.

Til þess að styðja vel við kerfið bætir eMessaging við eftirfarandi hlutum inní Sölugrunn

  • Centara Uppsetning

  • Centara Söluskjöl

  • Centara Sölupantanar

  • Centara Samanburður


Stillingar í Sölugrunni

Centara uppsetning

Aðgerð

Lýsing

Sendir sölureikninga til Centara

Sendir sölureikninga til Centara með því að kveikja á flæðinu

Sendir sölukreditreikninga til Centara

Sendir sölukreditreikninga til Centara með því að kveikja á flæðinu

Virkjar rafræn skjöl

Kveikir á verkflæðinu til að senda rafræn skjöl

Sýna fleiri svæði

Þegar verið er að vinna með innkomandi skjöl er hægt að fá fleiri svæði sýnd


* Skattflokkur

* Afsláttar %

* Afsláttar upphæð

* Einingarverð

* Grunnmælieining

Uppfæra allar sölulínur rafrænna skjala

Þegar bókunarstýring er stofnuð, er hægt að fá kerfið til þess að kíkja yfir allar aðrar línur á reikningi og uppfæra þær

EndpointID fyrir PEPPOL

Ef það er verið að nota fyrir skal setja Kennitölu fyrirtækis

Gerð rafræns móttakanda

Þegar reikningur er myndaður, er hægt að afhenda hann annað hvort til "Reikningsfærist" eða "Selt-Til" viðskiptamanns. Þetta skiptir máli ef að Selt-To og Reikningsfærist er sitthvor aðilinn. Ennfremur er hægt að velja Bæði enn þá eru sendu tvö PEPPOL skeyti

Senda tölvupóst ef skjal fellur á sannreyningu

Ef að skjalið fellur á sannreyningu í skeytamiðlara, er ekki mögulegt að afhenda skeytið áfram. Hins vegar er möguleiki að senda PDFið áfram í gegnum tölvupóst.

Senda tölvupóst ef skjal fellur á sannreyningu

Ef virkjað, ef að viðskiptamaður er stofnaður þar sem að kennitala er Nr. viðskiptamanns þá er Kennitalan sem er í Nr, afrituð yfir í Kennitala fyrirtækis reitinn

Nota öll kenni viðskiptam/lánardr.

Ef viðskiptavinur eða lánardr. er Íslenskur þá er einungis notuð kennitala í rafrænum skjölum. Með að haka í möguleikann þá mun kerfið einnig leita eftir GLN og VSK númeri áður en kennitala er notuð fyrir íslenska viðskiptavini og lánardr.


Centara söluskjöl

Aðgerð

Lýsing

Hvenær á þetta við?

Fylla sjálfkrafa út Yðar tilvísun

Business central setur sem skilyrði við bókun að Yðar Tilvísun sé útfyllt. Ef virkjað þá er athugað hvort Yðar tilvísun sé útfyllt á söluskjölum og ef ekki þá er nr söluskjals sett sem Yðar tilvísun.

Alltaf uppfæra víddir

Ef fjárhagslykill eða vara hefur sjálfgefnar víddir þá eru eru þær víddir notaðar. Með að virkja þennan möguleika þá eru þær víddir yfirskrifaðar með víddum í bókunarstýringu. Eingöngu fyrir sölupantanir.

Mynda PDF af söluskjali sem viðhengi.

Myndar PDF af sölureikning sem er uppsettur í skýrsluval og sendir með sem viðhengi við rafræna reikninginn. Ef hakað er í "Senda tölvupóst ef skjal fellur á sannreyningu" í Courier Uppsetning þá mun PDF viðhengið verða sent í tölvupóst á tölvupóstfang sem skilgreint er á viðskiptamanni/lánardr.

Nota Wise Peppol Sannreyningu

Ef valið þá mun kerfið sannreyna ákveðna hluti af skjali við bókun. Ef eitthvað vantar þá er bókun stoppuð svo hægt sé að laga og koma í veg fyrir að skjalið falli á sannreyningu hjá skeytamiðlara.

Nota reikningsfærist á upplýsingar af viðskiptamannaspjaldi

Þessi möguleiki sækir þá reiknisfærist á upplýsingar af viðskiptamannaspjaldinu í stað þess að nota upplýsingarnar af bókaða sölureikningnum.

Svæði fyrir bókunartilvísun

Tilgreinir hvaða svæði úr haus sölureiknings á að nota sem bókunartilvísun á rafrænum reikning.


Centara Sölupantanir

Mynda sölupöntun sjálfkrafa útfrá pöntun

Myndar sölupöntun sjálfkrafa útfrá móttekinni pöntun ef allar upplýsingar eru til staðar til að mynda sölupöntun. Ef eitthvað vantar uppá þá mun pöntunin sitja eftir í "Rafræn skjöl til móttöku" og þarfnast frekari meðhöndlunar áður en hægt er að mynda sölupöntun útfrá henni.

Bóka sölupantanir sjálfkrafa

Sölupantanir eru bókaðar sjálfkrafa. Þessi möguleiki er mest notaður þegar fyrirtækið er að taka við pöntunum frá ytri vef t.d. og allar upplýsingar koma réttar og þurfa ekki frekar meðhöndlun. Einnig bókast bara skjöl þar sem upphæð á sölupöntun stemmir við upphæð rafrænnar pöntunar.

Alltaf bóka sjálfkrafa

Þessi möguleiki gerir fyrirtæki kleift að bóka sölupantanir sjálfkrafa þótt upphæð á sölupöntun og rafrænni pöntun stemma ekki. Mælt er með að stilla þá "Mismunur upphæðar" í annað en 0.

Mismunur upphæðar

Þetta er sú upphæð sem má mest muna á milli sölupöntunar og rafrænnar pöntunar svo hún sé bókuð sjálfkrafa. Mælt með að stilla þessa upphæð ef "Alltaf bókast sjálfkrafa" er virkjað.


Centara Samanburður

Aðgerð

Lýsing

Hvenær á þetta við?


Fyrsta uppsetning

Ef þú ert að setja lausnina upp í fyrsta sinn og varst að klára uppsetningar álfinn er mjög gott að yfirfara eftirfarandi atriði:

  • Merkja við "Virkja verkflæði fyrir rafræn skjöl"

  • Gæta þess að "Kennitala fyrirtækis" sé valið í reitnum fyrir "EndpointID fyrir Peppol"

  • Gæta þess að rétt gildi sé í reitnum "Gerð rafræns móttakanda"

  • Ef sendandi vill að tölvupóstur sé sendur á viðtakanda reikningur fellur á sannreyningu þarf að virkja "Senda tölvupóst ef skjal fellur á sannreyningu"

  • Yfirfara tilvísanir undir Centara Söluskjöl svo rétt gildi séu birt á réttum stöðum á reikningum:

    • Reytur fyrir lýsingu

    • Svæði fyrir bókunartilvísun

    • Setja Nr. pöntunar í reit

Ábending til ráðgjafa: Ráðgjafar sem tengjast við umhverfi viðskiptavina í gegnum Partner Center eru svokallaðar "Delegated Admins".
Microsoft leyfir þeim ekki að keyra verkraðir og ráðgjafar verða því að fá notanda hjá viðskiptavini til að virkja "Virkja verkflæði fyrir rafræn skjöl".

Did this answer your question?